Önundur Páll Ragnarsson
Önundur Páll Ragnarsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Önundur Páll Ragnarsson hagfræðingur hefur verið ráðinn á fjármálastöðugleikasvið Seðlabanka Íslands.

Hann mun taka þátt í að móta þjóðhagsvarúðarstefnu bankans.

Önundur hefur áður starfað tímabundið hjá Seðlabankanum, hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og þar áður hjá Morgunblaðinu.

Hann útskrifaðist nýlega með M.S. gráðu í þjóðhagfræðilegri stefnumótun og fjármálamörkuðum frá Barcelona Graduate School of Economics.