ORF Líftækni ehf. og dótturfélag þess, Sif Cosmetics, töpuðu 61 milljón á síðasta ári. Rekstur samstæðunnar var með mjög svipuðu móti og árið á undan, en þá töpuðust 62 milljónir króna. Heildarvelta samstæðunnar nam 576 milljónum í fyrra og jókst um 65 milljónir frá árinu áður. Í ársreikningi kemur fram að gert sé ráð fyrir svipuðum rekstri áfram. Starfsmönnum ORF Líftækni fjölgaði um fjóra á árinu og hluthöfum sömuleiðis. Hluthafar í byrjun árs voru 83 en í lok þess 87. Laun og þóknanir til stjórnenda námu 82,7 milljónum króna.