Síðdegis í dag mun framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) taka fyrir fjórðu endurskoðun á efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og sjóðsins. Óvíst er hvort að lánafyrirgreiðsla Norðurlandanna muni standa íslenskum stjórnvöldum til boða að lokinni fjórðu endurskoðun þar sem enn bólar ekkert á útgreiðslunni sem átti að standa til boða að lokinni síðustu endurskoðun.

Þetta segir í morgunkorni Íslandsbanka. „Norðurlöndin bíða eflaust enn eftir því að Icesave málið verði útkljáð. Eins og kunnugt er liggur nú nýr Icesave samningur fyrir og mun Alþingi taka hann til umfjöllunar þegar það kemur að nýju saman eftir jólafrí eftir næstu helgi,“ segir í morgunkorni.

„Verði endurskoðunin samþykkt mun íslenskum stjórnvöldum standa til boða lánafyrirgreiðsla að jafngildi 19 milljörðum króna eða sem nemur 162 milljónum Bandaríkjadala. Síðasta endurskoðun var samþykkt þann 30. september síðastliðinn.“