Páll Þór Magnússon og Jón Kristjánsson báðust lausnar sem stjórnarmenn í Tryggingamiðstöðinni á hlutahafafundi í gær, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Í stað voru kosnir í stjórn félagsins þeir Guðmundur Davíðsson og Sigurður G. Guðjónsson, segir í tilkynningunni.

Auk þeirra skipa aðalstjórn þau Geir Zoega, Guðbjörg Matthíasdóttir, varaformaðurog Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, formaður.

Úr varastjórn gekk Birgir Ómar Haraldsson. Nýr varamaður stjórnar var kosinn Páll Þór Magnússon, auk Sindra Sindrasonar.