Póstverslun með lyf verður nú að veruleika samkvæmt reglugerð sem Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur sett. Á vef heilbrigðisráðuneytisins segir að reglugerðin, sem sett var í gær, sé rökrétt framhald af viðamikilum breytingum á lyfjalögum sem tók gildi 1. október sl. Með þeim var póstverslun með lyf leyfð með því skilyrði að viðskiptin séu í tengslum apótek.

Þetta skilyrði er sett til að tryggja rétta meðhöndlun lyfja með þessum sendingarmáta og ekki síður til að tryggja öryggi þeirra sem fá lyfin. Er í þessu sambandi brýnt að hafa fullkomna yfirsýn og eftirlit með lyfsöluferlinu frá framleiðslu til sjúklings.

Í reglugerðinni er því gert ráð fyrir að póstverslun sé bundin lyfsöluleyfum og að þessi starfsemi falli að þeirri umgjörð sem búin er lyfjaverslun í landinu og á Evrópska efnahagssvæðinu. Þá eru í reglugerðinni settar fram kröfur um pökkun, merkingar, flutning, afhendingu og rekjanleika lyfjanna. Lagt er blátt bann við því að senda eftirritunarskyld ávana- og fíknilyf með pósti.

Reglugerðardrögin voru send í tæknilegan tilkynningarferil á Evrópska efnahagssvæðinu en ekki bárust neinar athugasemdir.