Boeing hefur staðfest að því hefur tekist að kveikja á rafkerfi nýju 787 Dreamliner vél sinni og að það virkaði eins og það á að gera.

Þetta er talið vera til marks um að fyrsta flug vélarinnar verði á áætlun, samkvæmt frétt MSNBC. Komu 787 vélarinnar á markað hefur ítrekað verið frestað, en að ná að kveikja á vélinni sýnir að Boeing hefur tekist að komast í gegnum erfiðleikana við smíðina.

Dreamliner verður fyrsta nýja vél Boeing í um áratug.