Ráðherrar ríkisstjórnar Íslands gáfu sér tíma fyrir vikulegan ríkisstjórnarfund í morgun til að leggja átakinu Karlmenn og krabbamein lið og kaupa fyrstu slaufurnar sem seldar eru til styrktar kynningarátakinu. Slaufurnar verða seldar næstu tvær vikur á fjölda útsölustaða um allt land.

Þetta er í fyrsta skipti sem efnt er til sérstaks átaks um karlmenn og krabbamein hér á landi. Einkennistákn átaksins er þrílit slaufa; blá, hvít og fjólublá, en litirnir tákna þrjú algengustu krabbamein í körlum; blöðruhálskirtils-, lungna- og ristilkrabbamein. Slaufan er hönnuð að frumkvæði Krabbameinsfélags Íslands.

Slaufan fór í sölu í dag og verður hægt að kaupa hana hjá Póstinum, Frumherja, Sambíóunum, Kaffitári, verslunum Eymundsson og ýmsum öðrum sölustöðum um land allt. Slaufan kostar 500 krónur og rennur ágóði söfnunarinnar til forvarna og kynningar á krabbameini hjá karlmönnum.

Að meðaltali greinast árlega um 630 íslenskir karlar með krabbamein, þar af 190 með krabbamein í blöðruhálskirtli, 64 með lungnakrabbamein og 51 með ristilkrabbamein. Horfur þeirra sem greinast með krabbamein á Íslandi eru almennt góðar en miklu skiptir að bregðast sem fyrst við einkennum og því geta fræðsla og forvarnir um einkenni og úrræði skipt sköpum.

Auk sölu slaufunnar hefur vefur átaksins verið opnaður á slóðinni www.karlmennogkrabbamein.is auk þess sem bæklingi verður dreift á öll heimili í landinu þar sem fyrstu einkennum krabbameins hjá körlum er lýst og útskýrt hvernig bregðast eigi við ef slík einkenni gera vart við sig.