Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,05% í dag og endaði í 1905,38 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 1,33% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Eikar, eða um 0,92% í viðskiptum sem hljóða upp á 530 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 8,73 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Marel, eða um 0,21% í 295 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Marel er þá 242,5 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa VÍS, eða um 1,66% í 236 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut VÍS er 8,30 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,39% í viðskiptum upp á 182 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar þá 37,95 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 1,3 milljarðar króna.