Rauðar tölur voru í Kauphöllinni í dag en gengi nær allra félaga sem mynda Úrvalsvísitöluna lækkaði.

Gengi hlutabréfa Haga lækkaði mest, um 1,36%. Á eftir kom gengi bréfa fasteignafélagsins Regins, sem lækkaði um 1,28% Gengi beggja félaga hækkaði mest á markaðnum í gær. Þá lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,88%, Marels um 0,32% og stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,24%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,49% og endaði hún í rétt tæpum 1.058 stigum.