Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,20% í dag og endaði í 1,802.9 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 4,12% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Vodafone, eða um 0,33% í viðskiptum sem hljóða upp á 90 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 45 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair, eða um 0,43% í litlum 8 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair Group nemur þá 35,05 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Reita um 0,12% í 203 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Reita er þá 83,7 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa VÍS um 1,26% í 69 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 8,59 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 670 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4,6 milljarðar króna.