Vörur voru fluttar út fyrir 561 milljarð króna en inn fyrir 440,8 milljarða króna fob, 477,2 milljarða króna cif. Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 120,2 milljörðum króna en 90,3 milljarða króna afgangur var árið 2009 á gengi hvors árs. Þetta kemur út í heftinu Vöruskipti við útlönd sem Hagstofa Íslands gefur út.

Í frétt á vef Hagstofunnar vegna þessa segir m.a.:

„Vöruútflutningur jókst um 12,0% frá fyrra ári á gengi hvors árs og vöruinnflutningur um 7,0%. Hlutur sjávarafurða var 39,3% og iðnaðarvöru 55,4% en í vöruinnflutningi voru stærstu vöruflokkarnir hrá- og rekstrarvörur, fjárfestingarvörur og neysluvörur aðrar en mat- og drykkjarvörur. Stærstu viðskiptalönd voru Holland í vöruútflutningi og Noregur í vöruinnflutningi og var EES þýðingarmesta markaðssvæðið, jafnt í vöruútflutningi sem vöruinnflutningi.“