Rúnar Ágúst Svavarsson hefur tekið við sem þróunar- og markaðsstjóri hjá Hreinu ehf. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Hann hefur starfað hjá félaginu síðustu ár, síðast sem verkefnastjóri fyrirtækisins.

Rúnar útskrifaðist með BS í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2011 og með ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2013. Rúnar er í sambúð með Helgu Maggý Magnúsdóttir.