Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mun ekki leitast eftir endurkjöri í alþingiskosningunum sem fram fara næsta haust. Morgunblaðið greinir frá þessu en í samtali við blaðið segir ráðherrann ákvörðunina vel ígrundaða.
„Ég hef hugsað þetta og búinn að gera það upp við mig, að þetta sé orðið gott eftir 35 ára þjónustu í stjórnmálum og ætla því ekki að leita endurkjörs í haust," hefur Morgunblaðið eftir Kristjáni Þór.
Hann kveðst þó áfram ætla að vera virkur í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins, jafnvel þó að hann verði ekki áfram með forystumanna flokksins að yfirstandandi kjörtímabili loknu.