Sala HB Granda á frystitogaranum Venus HF 519 hefur gengið til baka vegna vanefnda kaupanda, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. Þann 17. desember 2013 var greint frá því að Venus, sem var smíðaður á Spáni árið 1973, hefði verið seldur til grænlenska félagsins Northern Seafood ApS og var söluverðið 320 milljónir króna sem greiðast skyldi á næstu árum.

Nú, rúmu ári síðar, var undirritað samkomulag um að kaupin gangi til baka vegna vanefnda kaupanda en samkvæmt tilkynningu HB Granda var það mat stjórnenda félagsins að farsælast væri að taka við skipinu og leita nýs kaupanda. Samhliða móttöku skipsins er matsverð þess fært niður um 85 milljónir króna í bókum félagsins.