Dótturfélag Samherja hf. Kaldbakur ehf. hefur keypt 2.444.446 hluti í Rem Offshore ASA í Noregi á genginu 53,50 og á eftir kaupin 6,24 % af heildarhlutafé félagsins. Jafnframt hefur verið gert hluthafasamkomulag milli fimm hluthafa sem eiga 50,51% eignarhlut um að koma fram sameiginlega á aðal- og hluthafafundum félagsins.


Með kaupunum er Samherji að fara á nýjar slóðir í útgerð.  ”Rem Offshore er spennandi fyrirtæki, með framsækna og skarpa framtíðarsýn og við álítum möguleikana góða fyrir þennan rekstur.  Þekking starfsmanna Samherja mun nýtast en einnig fáum við tækifæri til að öðlast nýja þekkingu í útgerð skipa. Það er mitt mat að þessi fjárfesting styrki Samherja til framtíðar bæði þekkingar- og rekstrarlega”, segir Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja hf.

Í  samkomulaginu er einnig forkaupsréttarákvæði milli þessara aðila í. Þetta hefur verið tilkynnt til Norsku Kauphallarinnar.Rem Offshore er útgerðarfyrirtæki sem þjónar olíu-,  byggingar- og rannsóknariðnaði á sjó.  Félagið gerir út 7 stór skip en 12 skip til viðbótar eru í smíðum, til afhendingar á næstu 3 árum.  Floti Rem er sá nýjasti og fullkomnasti á þessu sviði í heiminum. Þjónustusvæði skipanna er aðallega á Norðursjó en einnig undan ströndum Mexíkó, Indlandi og Brasilíu.  Rekstri félagsins er stýrt frá höfuðstöðvunum í Fosnavåg í Noregi og eru starfsmenn um 300. Starfsemin hefur vaxið ört á undanförnum misserum og er velta Rem Offshore á árinu 2007 áætluð um 420m NOK í samanburði við 189m NOK á árinu 2006. Félagið var skráð á hlutabréfamarkað í Noregi í mars s.l.