Aðalfundur Samkaupa var  haldinn 19. mars síðastliðinn.  Velta Samkaupa og dótturfélagsins Búrs, var tæplega 23,5 milljarðar á síðasta ári og jókst um tæp 3,6% frá fyrra ári.  Hagnaður félagsins eftir skatta var rúmar 296 milljónir. Það er um 44 milljónum króna minni hagnaður en árið á undan

Samkaup reka 48 verslanir undir merkjum Nettó, Kaskó, Samkaup úrval og Samkaup strax, verslanirnar eru á 34 stöðum um allt land.  Starfsmenn félagsins á árinu 2013 voru 874 í 498 stöðugildum.

Hluthafar Samkaupa voru 177 í lok árs 2013, segir í tilkynningu vegna uppgjörsins.  Kaupfélag Suðurnesja ásamt dótturfélögum átti 62,9% hlut og Kaupfélag Borgfirðinga ásamt dótturfélagi átti 21,9%.  Aðrir hluthafar áttu minna en 10% hver um sig.

Kaupfélag Suðurnesja var stofnað í Keflavík  árið 1945 og nær starfssvæði þess nú  yfir Suðurnesin, Hafnarfjörð, Garðarbæ, Kópavog, Seltjarnarnes og Reykjavík.  Félagar eru tæplega  5.000.  Kaupfélag Borgfirðinga var stofnað árið 1904 og nær félagssvæði  þess frá Breiðafirði suður í Hvalfjörð.  Félagar eru rúmlega 1.500.

Verslanir Samkaupa voru margar hverjar reknar áður af kaupfélögum.  Samkaup hafa gert samninga við öll kaupfélög á starfssvæðum verslana félagsins, um afsláttarkjör fyrir félagsmenn kaupfélaga. Í dag notfæra sér meira en 30.000 félagar kaupfélaga um allt land þessi afsláttarkjör í verslunum Samkaupa.