Á vef Samkeppniseftirlitsins kemur fram að Samkeppniseftirlitið sér ekki ástæðu til að aðhafast vegna kaupa Teymis hf. á öllu hlutafé í Kerfislausnum ehf.

„Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt,“ segir á vef SE.