Evrópsk samkeppnisyfirvöld hafa samþykkt án athugasemda kaup Marel Food Systems hf. [ MARL ] á Stork Food Systems. Yfirtökutilboð London Acquisition N.V. um kaup á öllum hlutum í Stork N.V. var lýst skilyrðislaust þann 17. janúar 2008. Einnig hafa kaupin fengið jákvæða umsögn Stork Works Council, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Með þessum niðurstöðum hefur öllum fyrirvörum í kaupsamningi Marel Food Systems hf. og Stork N.V. verið aflétt.

Marel Food Systems hf. hefur fjármagnað kaupverðið að fullu með lánsfé og útgáfu nýrra hluta, sölutryggðum af Landsbanka Íslands hf., með stuðningi frá stærstu hluthöfum félagsins. Stefnt er að útboði á nýjum hlutum í Marel Food Systems hf. til forgangsréttarhafa á öðrum ársfjórðungi 2008.

Þann 28. nóvember 2007 tilkynnti Marel Food Systems hf. að félagið hefði náð samkomulagi við Stork N.V. um kaup á Stork Food Systems.  Kaupverðið var 415 milljónir evra. Kaupin voru gerð með fyrirvara um:

• Að yfirtökutilboð London Acquisition N.V. um kaup á öllum hlutum í Stork N.V.  yrði skilyrðislaust

• Umsögn Stork Works Council

• Samþykki evrópskra samkeppnisyfirvalda

Sameinuð verða fyrirtækin í fararbroddi í framleiðslu hátæknibúnaðar fyrir matvælavinnslu á heimsvísu. Samanlögð velta þeirra er 660 milljónir evra og starfsmenn samstæðunnar yfir fjögur þúsund. Marel Food Systems hefur nú stærð og burði til að sækja af krafti inn á nýja markaði og er betur í stakk búið til að sinna stórum alþjóðlegum viðskiptavinum, segir í tilkynningunni.