Áætlað er að um áttatíu manns komi að byggingu Vaðlaheiðarganga næstu þrjú og hálft ár. Stefnt er að því að göngin verði tekin í notkun í desember árið 2016. Þetta kemur fram á vefsvæði Vikudags í dag.

Framkvæmdir við göngin hefjast apríl og er samningar við ÍAV og svissneska fyrirtækið Matri um gangnagerðina nú á lokastigi. Samningurinn verður undirritaður þann 1. febrúar næstkomandi.