Félagið Hildingur ehf. hefur keypt eignarhlut í Miðlun ehf. og undirrita félögin í dag samkomulag um uppbyggingu á fullkomnu samskiptaveri á Akureyri. Samskiptaverið verður staðsett að Glerárgötu 36 og mun sinna verkefnum í símsvörun og úthringingum fyrir fyrirtæki og stofnanir um land allt að því er kemur fram í frétt á heimasíðu Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar.

Reiknað er með 10-12 störfum í fyrstu skrefum uppbyggingarinnar og stefnt að 30-40 manna vinnustað á næstu þremur árum.