Mál 1998 ehf. er enn í úrlausnarferli hjá Nýja Kaupþingi að því er segir í tilkynningu sem bankinn var að senda út rétt í þessu. Þar segir að yfirtaka á hlutabréfum félagsins sé liður í því að tryggja hagsmuni bankans í yfirstandandi ferli. "Í öllum skuldamálum fyrirtækja sem koma til skoðunar í bankanum er fylgt verklagsreglum bankans. Í þeim segir m.a. að bankinn leggi áherslu á samstarf við eigendur og stjórnendur í vinnu við endurskipulagningu fyrirtækja," segir í tilkynningu.

Þar segir ennfremur að þannig sé eigendunum gefið tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum að lausn á vandamálum fyrirtækja sinna.

Til að gæta jafnræðis telur bankinn mikilvægt að nálgast öll mál með þessum hætti. Þótt eigendur fyrirtækja fái tækifæri til að leggja fram hugmyndir að lausn á skuldavanda félaga sinna er ljóst að þær þurfa að vera raunhæfar. Þær þurfa þannig að standast samanburð við aðra möguleika í stöðunni og vera í takt við kröfu bankans um að endurheimta sem mest af verðmætum sínum.

Ekki er komin niðurstaða í máli 1998 og ítrekar bankinn að allar tölur sem nefndar hafa verið í fjölmiðlum eru úr lausu lofti gripnar segir í tilkynningu Nýja Kaupþings