Seðlabankinn hefur haft samband við fjölda erlenda seðlabanka og beðið þá um að liðsinna bankanum  með því að beina þeim tilmælum til eigin banka að nota innviði Seðlabanka Íslands til að koma greiðslum til landsins ef bankar þeirra óttast að skapa sér skaðabótaábyrgð skili greiðslur sér ekki til rétts aðila.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum en vonast er til að það fari að bera árangur í byrjun þessarar viku.

Þeim tilmælum hefur verið beint til breskra stjórnvalda að þau skýri betur út umfang og aðgerðir sínar. Fjármálaráðuneyti Bretlands gaf út nánari útskýringar og birti á vef sínum s.l. föstudag og ætti það að leysa úr hluta af þeim vanda sem við er að etja, segir í tilkynningu Seðlabankans.   „Engu að síður verða allir aðilar að gera sér grein fyrir að það tekur tíma að greiða úr þeim mikla vanda sem skapast hefur, enda erum við háð aðgerðum og inngripum fjölda erlendra aðila,“ segir í tilkynningunni.

„Allir sem hagsmuna hafa að gæta og verða fyrir áhrifum eru hvattir til þess að reyna eftir fremsta megni að skýra út fyrir samstarfsaðilum sínum um hvað málið snýst. Þetta er ekki skortur á vilja eða getu innlendu aðilanna til að standa í skilum við erlenda viðskiptavini sína.  Kjarni vandans eru aðgerðir og inngrip erlendra fjármálafyrirtækja sem m.a. má rekja til aðgerða breskra stjórnvalda og annarra aðila.“

Þá kemur jafnframt fram að Seðlabanki Íslands hefur tekið saman ýmsar upplýsingar um stöðuna í greiðslumiðlun í landinu og milli landa. Þar er lýst stöðunni bæði gagnvart einstaklingum og fyrirtækjum.

Seðlabankinn mun uppfæra þessar upplýsingar á sérstakri vefsíðu, sjá hér.