Samtök iðnaðarins stóðu nýverið fyrir talningu íbúða í byggingu á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstaðan er sú að íbúðir sem eru fokheldar og lengra komnar eru rúmlega 800 talsins og hafin er bygging á um 700 íbúðum til viðbótar sem eru skemur á veg komnar. Á árinu 2013 er ráðgert að alls verði byrjað að byggja 1.300 íbúðir á árinu.

Meirihluti þessara 1300 íbúða sem farið verður af stað með 2013 eru stórar og dýrar eigni, að því er segir á vefsíðu SI. Miðað við fjölda íbúða og byggingarstig telja Samtök iðnaðarins ótvírætt að þörf sé á íbúðum fyrir „fyrstu íbúða kaupendur“, þ.e. smærri og ódýrari eignir, án bílakjallara svo dæmi sé tekið. Allt of hátt lóðarverð hamli aftur á móti byggingu þeirra.

Líta verði til þess að sala á húsnæði hefur verið dræm frá hruni og margir sem hafa haldið að sér höndum eru nú tilbúnir að kaupa, einnig séu stórir árgangar að koma nýir inn á markaðinn. „Miðað við eðlilegt árferði þarf að byggja 1500 – 1800 íbúðir árlega. Allt frá hruni hafa íbúðabyggingar verið langt undir því viðmiði og því er mikil uppsöfnuð þörf á íbúðamarkaði sem m.a. birtist í háu leiguverði. Þá þarf að hafa í huga að byggingartími íbúðar í fjölbýli er 18-24 mánuðir þannig að ljóst er að íbúðir í byggingu eru langt frá því að fullnægja þörf markaðarins,“ segir á vefsíðu SI.