Samtök iðnaðarins (SI) gera ræðu Árna Páls Árnasonar, félagsmálaráðherra á ársfundi ASÍ í gær að umtalsefni á vef sínum í dag. Samtökin segja að Árni Páll hafi væntanlega ætlað að gefa tóninn fyrir lokasprettinn til að halda lífinu í stöðugleikasáttmálanum en vonandi sé ræða hans þó ekki til marks um viðhorf ríkisstjórnarinnar í þeim efnum.

„Það er langt síðan orðræða af því tagi sem félagsmálaráðherra hafði uppi hefur heyrst,“ segir á vef SI.

„Óforskammaðir kapitalistar, útgerðarauðvald, erlendir auðhringar, ginningarfífl stjóriðju, grátkór og kveinstafir útgerðar og álfyrirtækja skal það nú heita.“

SI segja að staðreyndin sé sú að atvinnurekendur og verkalýðshreyfingin hafi staðið við sitt við í tengslum við gerð stöðugleikasáttmálans en ríkisstjórnin ekki. Það sé bláköld staðreynd.

„Skeytasendingar félagsmálsmálaráðherra breyta því ekki,“ stendur á vef SI.

„Ekki heldur því að atvinnurekendur og verkalýðshreyfingin eru samstiga í gagnrýni sinni á ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki staðið við sitt, ekki síst á sviði uppbyggingar í tengslum við framkvæmdir tengdar stóriðju.“

Loks segir á vef SI að ekki sé gott að átta sig á tilgangi félagsmálaráðherra með ræðu sinni. Erfitt sé að minnsta kosti að sjá að henni hafi verið ætlað að vera lóð vogarskálar þess að halda lífi í stöðugleikasáttmálanum.

Sjá nánar á vef SI.