Verslunin Brynja hagnaðist um 6 milljónir króna á síðasta ári. Það er nánast því óbreyttur hagnaður frá árinu 2013, en þá nam hagnaðurinn 6,3 milljónum.

Eignir Brynju námu 52 millj ónum króna í lok síðasta árs, en þar af nam handbært fé tæpum 19 milljónum. Eigið fé Brynju nam 39,3 milljónum og var eiginfjárhlutfallið því 76%.

Brynjólfur H. Björnsson á 95% hlutafjár í Brynju