Sigurður Einarsson tilkynnti í gær að hann segði sig úr stjórn Storebrand í Noregi frá og með deginum í dag. Sigurður settist í stjórnina í janúar í fyrra, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. Á þeim tíma hafði Kaupþing eignast 20% hlut í Storebrand.