Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn Bakkavör Group hf. á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 23. mars næstkomandi, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar:

1. Ágúst Guðmundsson, Bretlandi, forstjóri Bakkavör Group hf. (Fyrst kjörinn 1986)

2. Antonios Prodromou Yerolemou, Bretlandi, stjórnarmaður í Bakkavör Group hf. (Fyrst kjörinn 2001)

3. Ásgeir Thoroddsen, Íslandi, hrl. (Fyrst kjörinn 2000)

4. Dionysos Andreas Liveras, Bretlandi, framkvæmdastjóri Laurens Patisseries Limited

5. Lýður Guðmundsson, Bretlandi, starfandi stjórnarformaður Exista hf. (Fyrst kjörinn 1986)

6. Katrín Pétursdóttir, Íslandi, framkvæmdastjóri Lýsi hf.

7. Panikos Joannou Katsouris, framkvæmdastjóri Katsouris Brothers Ltd. (Fyrst kjörinn 2001)

Samkvæmt samþykktum Bakkavör Group skal stjórn félagsins skipuð allt að sjö mönnum og má því ljóst vera að sjálfskipað er í stjórnina.