Ljóst er að keppst verður um fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir næstu bæjarstórnarkosningar. Að minnsta kosti tveir gefa kost á sér í leiðtogasætið. Prófkjörið fer fram 1. febrúar.

Kristinn Andersen lýsti yfir framboði í dag. Í október síðastliðnum lýsti Rósa Guðbjartsdóttir því yfir að hún gæfi kost á sér í fyrsta sætið. Bæði sitja þau í bæjarstjórn í dag.

Valdimar Svavarsson, núverandi oddviti flokksins í bæjarstjórn, lýsti því hins vegar yfir í desember að hann gæfi ekki kost á sér aftur.