Sjöfn Vilhelmsdóttir hefur verið ráðinn forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála, en hún hóf störf í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Sjöfn er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá HÍ, MA gráðu í alþjóðfræðum frá University of Denver og stundar nú doktorsnám við stjórnmálafræðideild HÍ.

Síðustu ár hefur hún að mestu starfað við verkefnastjórn, rannsóknir og kennslu innan HÍ, var um tíma framkvæmdastýra UN Women á Íslandi og vann ýmis störf hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands, m.a. í Namibíu.