Skarphéðinn Berg Steinarsson, sem situr í stjórn Iceland Express, mun taka tímabundið við starfi forstjóra félagsins, eftir brotthvarf Birgis Jónssonar sem gegndi starfinu í 10 daga.

Í tilkynningu frá Express segir að stjórn félagsins muni á næstu dögum eða vikum ráða nýjan forstjóra.

„Brotthvarf Birgis Jónssonar úr stóli forstjóra eftir aðeins tíu daga í starfi hefur engin áhrif á daglegan rekstur Iceland Express. Hjá fyrirtækinu vinnur einbeittur hópur fagfólks sem sér til þess að reksturinn hafi sinn vanagang. Aldrei áður hafa eins margir kosið að ferðast með Iceland Express og það sem af er þessu ári, bæði útlendingar sem og Íslendingar og framundan er að kynna metnaðarfulla sumaráætlun félagsins fyrir næsta ár.“