Nýjar tölur Hagstofu Íslands undirstrika að umfang skuldavanda heimila eftir efnahagshrunið fer minnkandi.

Með sama áframhaldi verður staðan eftir nokkur ár svipuð og ún var undir lok síðustu aldar, þegar um 10 þúsund heimili áttu í vanda vegna íbúðaskulda. Þetta er mat þorvarðar Tjörva Ólafssonar, sérfræðings hjáSeðlabankanum, sem Morgunblaðið ræddi við. Þorvarður Tjörvi hefur rannsakað skuldaþróunina á síðustu árum. Hann segir að heimilum með neikvætt eigin fé hafi fækkað úr 23.300 í lok árs 2010 í 17.800 í lok árs 2012.

„Það verður að gera greinarmun á greiðsluvanda og skuldavanda. Staðan er alvarlegust þegar hvort tveggja fer saman. Þegar það dregur svona ört úr skuldavanda heimila þá minnkar sá hópur sem er líklegur til að vera samtímis í greiðslu og skuldavanda,“ segir Þorvarður Tjörvi við Morgunblaðið.