Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor‘s (S&P) gefur Arion banka lánshæfismatið BB+ með stöðugum horfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion.

Mat S&P byggist á traustri stöðu Arion banka á innlendum markaði. Bankinn hefur aukið markaðshlutdeild sína á íbúðalánamarkaði á undanförnum árum og skiptist starfsemi hans nú jafnt milli einstaklings- og fyrirtækjaviðskipta. Hins vegar er bankinn lítill í alþjóðlegu samhengi.

S&P telur dreifingu tekna bankans góða en um 60% tekna eru hreinar vaxtatekjur og 25% eru vegna þóknana.

Mat S&P byggist einnig á því að eiginfjárstaða bankans er sterk og góð arðsemi af rekstri hans. Gert er ráð fyrir að eiginfjárstaðan batni enn frekar í takt við frekari sölu óskráðra eigna í félögum sem bankinn hefur þurft að taka yfir á undanförnum árum.

Áhætta í rekstri bankans er í meðallagi. Endurskipulagningu lánasafns er að mestu leyti lokið og S&P telur að frekari niðurfærslur verði að öllum líkindum takmarkaðar.

Fjármögnun bankans er einnig í meðallagi. Þar vegast á stöðug langtímafjármögnun bankans í samanburði við aðra banka og hættan af mögulegu útflæði innstæðna. Litlar endurgreiðslur eru af langtímalánum til ársins 2020, sem er styrkleikamerki.

Lausafjárstaða bankans er sterk að mati S&P og er hann með sterka þekju lauss fjár til að standa við greiðslur af skuldum. Auk þess á bankinn laust fé og lausafjáreignir í formi verðbréfa sem nægja til að greiða út allar innstæður í erlendum myntum.

S&P telur Arion banka vera mikilvægan fyrir fjármálastöðugleika á Íslandi. Þrátt fyrir það telur matsfyrirtækið að ekki sé að vænta stuðnings frá íslenska ríkinu ef kæmi til fjármálalegs óstöðugleika.

„Lánshæfiseinkunnin BB+ með stöðugum horfum er góð einkunn frá S&P þegar tekið er mið af lánshæfismati íslenska ríkisins. Lánshæfiseinkunn frá alþjóðlegu matsfyrirtæki mun bæta aðgengi okkar að erlendum fjármálamörkuðum, sem er mikilvægt. Það gerir okkur vonandi kleift að bjóða viðskiptavinum, sem þess þurfa, erlenda fjármögnun á hagstæðari kjörum. Jafnframt er ljóst að bætt aðgengi Arion banka og annarra íslenskra fjármálafyrirtækja að alþjóðlegum lánsfjármörkuðum er ein af forsendum þess að hægt verði að aflétta gjaldeyrishöftum og það er einnig í því ljósi sem við teljum þetta jákvætt skref,“ segir Höskuldur Ólafsson bankastjóri í tilkynningu.