Starfsmanni MP banka hefur verið sagt upp störfum en starfsmaðurinn er grunaður um misferli í starfi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Brotið uppgötvaðist við innra eftirlit og hefur verið tilkynnt til lögreglu.

„Málið er litið afar alvarlegum augum innan bankans en snýr ekki að fjármunum viðskiptavina hans. Áhrifin af meintu misferli á bankann eru hverfandi með hliðsjón af stærð hans.

Ekki er hægt að greina nánar frá málinu á meðan lögregla hefur það til rannsóknar,“ segir í tilkynningunni.