Stefán Óli Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður þingflokks Pírata. Hann var valinn úr hópi rúmlega 200 umsækjenda, hóf störf 1. september og mun aðstoða þingflokkinn fram að Alþingiskosningum.

Stefán kemur til Pírata frá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar þar sem hann hóf störf í upphafi árs 2014. Á árum sínum hjá fréttastofunni miðlaði Stefán fréttum þvert á miðla; í sjónvarpi, útvarpi og á vef, auk þess að hafa komið að framleiðslu annars fréttatengds efnis.

Að loknu stúdentsprófi úr Verzlunarskóla Íslands lauk Stefán BA-gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í nýsköpun og viðskiptaþróun frá sama skóla.

Hjá Pírötum mun Stefán meðal annars annast samskipti við fjölmiðla og aðstoða þingmenn flokksins í störfum sínum. Fyrir eru starfsmenn þingflokksins þeir Eiríkur Rafn Rafnsson og Baldur Karl Magnússon.

„[F]ullur af misgáfulegum kosningaloforðum“

Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata, segir að Stefán sé kærkomin viðbót við þingflokkinn.

„Þekking og reynsla Stefáns mun koma að góðum notum við að koma okkar helstu áherslumálum á framfæri í baráttu okkar fyrir gagnsæi, ábyrgð, borgararéttindum og aukinni aðkomu almennings að ákvörðunartöku,“ segir Halldóra.

„Fram undan er krefjandi þingvetur þar sem aðhald mun skipta sköpum enda hafa stjórnvöld sýnt að þau eiga í erfiðleikum með að fóta sig í yfirstandandi þrengingum. Stefán verður öflugur liðsstyrkur í þeirri vinnu.“

Stefán kveðst spenntur fyrir verkefnum vetrarins.

„Ég kveð samstarfsfólk mitt á fréttastofunni með söknuði, enda fagfólk fram í fingurgóma sem hefur staðið vaktina með eftirtektarverðum hætti við mikið álag og kröpp kjör,“ segir Stefán.

„Næsta árið mun ég starfa með jafn öflugum og framtakssömum hópi fólks, sem brennur fyrir samfélagsumbótum. Kosningaveturinn verður óreiðukenndur, líflegur og fullur af misgáfulegum kosningaloforðum -  eða eins og áhrifavaldarnir orða það: Spennandi tímar fram undan.“