ÍAV og ítalska félagið Tenova, sem bæði komu að byggingu kísilvers United Silicon, hafa höfðað dómsmál fyrir Héraðsdómi Reykjaness þar sem fyrirtækin andmæla því að Arion banki hafi átt veðkröfu á þrotabú United Silicon. Félögin telja að krafan hafi átt að vera almenn krafa. Veðkrafan hafði í för með sér að Arion banki var fremst í kröfuhafaröðinni og tók yfir allar helstu eignir þrotabús United Silicon eftir að félagið var lýst gjaldþrota fyrr á þessu ári

Sigurður Ragnarsson, forstjóri ÍAV, býst við að lítið fáist upp í kröfur fyrirtækisins sem námu á annan milljarð króna vegna vangoldinna greiðslna við byggingu kísilversins nema dómur falli fyrirtækinu í vil. „Eins og staðan er núna er ekki útlit fyrir það nema þetta dómsmál hnekki þessu.“

Talsverðir fjármunir geta verið í húfi fyrir kröfuhafa en Arion banki metur verksmiðjuna á ríflega fimm milljarða króna. Arion banki telur málshöfðun ÍAV og Tenova ekki eiga við rök að styðjast en ef málið fellur bankanum í óhag hyggst bankinn endurgreiða þrotabúinu að því er fram kemur í skráningarlýsingu Arion baka. Alls nema lýstar kröfur í þrotabú United Silicon um 23 milljörðum króna, þar af átti Arion banki stærstu kröfuna, um 9,5 milljarða króna.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .