Lífeyrissjóðirnir ætla í mál við Slitastjórn Glitnis í því skyni að fá sundurliðaðar upplýsingar um launakostnað siltastjórnar Glitnis. Frá þessu var greint í Viðskiptablaðinu í dag. VB sjónvarp ræddi í dag við Steinunni Guðbjartsdóttur, formann slitastjórnar Glitnis, sem segist skoða á hvaða grundvelli lífeyrissjóðir óski eftir launaupplýsingum og hvaða máli slíkar upplýsingar skipti fyrir þá.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum Tölublöð hér að ofan.