Stolinn Range Rover jeppi fannst í bílskúr húss í Borgarnesi í vikunni sem leið. Húsið hafði nýlega verið boðið upp og er nú í eigu Íbúðalánasjóðs.

Frá þessu er greint á vef Skessuhorns . Þar kemur fram að bílnum var stolið af bílasölu í Reykjavík árið 2010. Honum hefur nú verið komið til eiganda síns og er málið í rannsókn lögreglu.