Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans – vextir á sjö daga bundnum innlánum – standa því áfram í 3%, en vextir bankans hafa lækkað um 1,5% það sem af er ári.

Nefndin segir í yfirlýsingu sinni að hagþróun hafi í megindráttum verið í samræmi við síðustu spá bankans í nóvember. 12 mánaða verðbólga mældist 2,7% í nóvember og hefur farið lækkandi, eins og spáð hafði verið, en verðhækkanir síðasta hausts í kjölfar nokkurs gengisfalls krónunnar hafa verið að færast út fyrir 12 mánaða tímabilið, sem veldur hjaðnandi 12 mánaða verðbólgu þrátt fyrir nokkuð óbreyttan takt verðlagsbreytinga síðustu misseri.

Verðbólguhorfur eru einnig meira og minna óbreyttar frá síðasta fundi nefndarinnar, og verðbólguvæntingar við markmið.

Tilkynning peningastefnunefndar:

Samkvæmt nýlega birtum þjóðhagsreikningum var hagvöxtur 0,2% á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta er aðeins meiri vöxtur en Seðlabankinn gerði ráð fyrir í nóvember en í meginatriðum hefur efnahagsþróunin það sem af er ári verið í samræmi við nóvemberspá bankans.

Verðbólga mældist 2,7% í nóvember og hefur, eins og undirliggjandi verðbólga, hjaðnað milli mánaða. Verðbólguhorfur hafa lítið breyst frá síðasta fundi nefndarinnar og verðbólguvæntingar eru við markmið miðað við flesta mælikvarða. Taumhald peningastefnunnar hefur því lítið breyst milli funda.

Peningastefnan mun á næstunni ráðast af samspili þróunar efnahagsumsvifa annars vegar og verðbólgu og verðbólguvæntinga hins vegar.