Alls var 537 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í júní sl., sem er um 15% fjölgun samninga á milli mánaða. Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu hefur þó fækkað um tæp 4% á milli ára.

Þá var 775 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í júní sem þýðir fjölgun samninga um rúm 11% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands. Samningum á landinu öllu hefur fækkað um tæp 2% á milli ára.

Á myndinni hér að neðan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 3 ár. Þar sést hvernig þinglýstum leigusamningum hefur fækkað nokkuð frá því að fjöldi þeirra náði hámarki haustið 2010. Fjöldinn tók kipp upp á við sl. haust en hefur síðan þá fækkað nokkuð. Þá má einnig sjá að fjöldi leigusamninga hefur tekið kipp upp á við á þessum tíma árs og fram á haustið.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum eða 100 samningum. Þá var 63 samningum þinglýst á Norðurlandi, 29 samningum þinglýst á Suðurlandi og 36 samningum á Vesturlandi.

Loks var 8 samningum þinglýst á Austurlandi og 2 samningum þinglýst á Vestfjörðum.

Á síðasta ári var um 9..950 samningum þinglýst á landinu öllu, samanborið við tæplega 10.00 samninga árið 2010. Þar af var um 6.350 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu, samanborið við um 6.850 samninga árið 2010. Það sem af er þessu ári hefur um 4.800 samningum verið þinglýst á landinu öllu, þar af tæplega 3.200 samningum á höfuðborgarsvæðinu.

© vb.is (vb.is)