Sunna Hrönn Sigmarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri tveggja dótturfélaga fasteignafélagsins Reginn hf. og María Rúnarsdóttir hefur verið ráðinn rekstrar- og þjónustustjóri hjá fyrirtækinu.

Sunna Hrönn Sigmarsdóttir
Sunna Hrönn Sigmarsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Sunna Hrönn Sigmarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri tveggja dótturfélaga Regins hf., Knatthallarinnar ehf. og Kvikmyndahallarinnar ehf. og mun hún taka sæti í framkvæmdastjórn Regins að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu.

Sunna er þar sögð hafa mikla reynslu af stærri og flóknari rekstri tengt fasteignum, útleigu, þróun og uppbyggingu og mun koma að slíkum verkefnum hjá Regin.

Sunna starfaði áður sem framkvæmdastjóri fasteignasviðs Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss frá 2011 þar sem hún hafði umsjón með rekstri, viðhaldi og útleigu.

Auk þessa sat Sunna í framkvæmdaráði Hörpu og Rekstrarfélaginu Stæða slhf. Einnig starfaði Sunna sem skrifstofustofustjóri Eignarhaldsfélagsins Portus hf. frá 2006 - 2011. Sunna hefur lokið B.Sc. í iðnaðartæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005.

Breyting þessi á framkvæmdastjórn félagsins er meðal skrefa hjá Reginn til að styrkja og þróa Egilshöll enn frekar með innri vexti og uppbyggingu til framtíðar.

María Rúnarsdóttir
María Rúnarsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

María Rúnarsdóttir hefur verið ráðin sem rekstrar- og þjónustustjóri hjá Reginn. María starfaði áður sem vörustjóri hjá Olíuverzlun Íslands frá 2013.

María hefur lokið M.Sc. í rekstrarverkfræði frá DTU árið 2012 auk B.Sc. gráðu í viðskiptafræði með áherslu á tungumál og alþjóðaviðskipti árið 2010.

María mun hafa umsjón með stýringu og utanumhaldi á þjónustusamningum vegna reksturs í fasteignum, s.s. ræstinga, þrifa, húsumsjónar, öryggisgæslu, þjónustuborðs auk þess að vera með utanumhald um húsfélög í fasteignum félagsins.

María mun einnig leiða og byggja upp nýjar og auknar áherslur til vistvænni fasteignarekstrar í samstarfi við framkvæmdastjóra dótturfélaga.