Matsölustaðurinn Súpuvagninn er ný veitingastaður í miðborginni. Hann opnar á morgun en þar verður boðið upp á íslenska kjötsúpu í matsöluvagni í Mæðragarði á Lækjargötu á daginn, en á Lækjartorgi á nóttunni. Í tilkynningu frá Súpuvagninum segir að markmiðið sé að ná til Íslendinga jafnt sem erlendra ferðamanna.

Tveir ungir bræður standa að opnun Súpuvagnsins, en þeir hafa lengi unnið að uppskrift hinnar fullkomnu kjötsúpu. Nú hafa færir matreiðslumeistarar smakkað súpuna og gefið henni góða einkunn. Því er ekkert til fyrirstöðu að opna vagninn.

Gabríel Þór Gíslason, annar eigandi Súpuvagnsins, er bjartsýnn á að reksturinn muni ganga vel.

„Það sem er mikilvægt í veitingarekstri er að halda öllum ferlum sem einföldustum, til þess að hafa góða yfirsýn yfir kostnaðarliðina. Einnig er mikilvægt að hafa góða vöru og þess vegna lögðum við svona rosalega mikla vinnu og ástríðu í að gera súpuna fullkomna,“ segir Gabríel. Hann bætir við að prufuopnun hafi átt sér stað um síðustu helgi og það hafi gengið eins og í sögu.