Svali H. Björgvinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Icelandair. Hann mun jafnframt sinna stefnumótun félagsins og sitja í framkvæmdastjórn þess. Svali er 41 árs, hann hefur verið framkvæmdastjóri Starfsmannasviðs Kaupþings og hóf þar störf árið 2003.

Þar áður var hann ráðgjafi og meðeigandi hjá PricewaterhouseCoopers. Hann nam sálfræði við Háskóla Íslands og vinnusálfræði og stjórnun frá New York University. Svali hefur auk þess kennt mikið við Háskóla Íslands og haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra.