Greiðslum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, að upphæð rúmlega tveggja milljarða króna, lýkur nk. mánudag. Framlögin áttu að berast sveitarfélögum um næstu mánaðarmót en var flýtt til að bæta fjárhagsstöðu þeirra.

Kristján L. Möller, samgönguráðherra, boðaði að flýtt yrði fyrir greiðslum á fyrsta ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 17. október sl.

„Einnig sagði ráðherra á fundinum að stefnt yrði að því að greiða í nóvember 250 milljónir króna af eftirstöðvum vegna 1.400 milljóna króna aukaframlags í Jöfnunarsjóð á árinu en nú þegar er búið að greiða 900 milljónir,“ segir í fréttatilkynningu frá samgönguráðuneytinu.

Einnig er í samgönguráðuneytinu unnið að tillögum að reglum fyrir úthlutun 250 milljóna króna framlags til sveitarfélaga vegna skerðingar á aflamarki og verða þær kynntar fljótlega.