Borið hefur á því að erlendir svikahrappar hringi í fólk, kynni sig sem starfsmenn Microsoft og vilji allt gera til þess að hjálpa viðkomandi við að setja upp vírusvörn. Microsoft á Ísland hvetur fólk til að vera á varðbergi enda auðvelt fyrir þá sem hafi illt í huga að komast yfir símanúmer Íslendinga.

Fram kemur í tikynningu frá Microsoft að fyrirtækið rekur sérstaka skrifstofu í Reykjavík. Starfsfólk fyrirtækisins hér hringi aldrei í fólk nema það hafi sérstaklega óskað eftir því.

Microsoft segir tilgang svikahrappanna geta verið af ýmsum toga: Að fylgjast með hegðun tölvueigendanna og mögulega selja óprúttnum fyrirtækjum upplýsingarnar, stela leyfislyklum að keyptum forritum og síðast en ekki síst komast yfir greiðslukortaupplýsingar og notendanöfn og lykilorð í heimabanka. Þannig geti svindlararnir mögulega valdið fólki stórvægilegu fjárhagslegu tjóni. Því miður séu fjölmörg dæmi um að fólk hafi glatað háum upphæðum í svindlum á borð við þetta.

Ekki er vitað fyrir víst í hversu marga hefur verið hringt hér á landi eða hversu margir hafa látið gabbast en á meðal þeirra sem hafa fengið þessi símtöl eru þrír íslenskir starfsmenn Microsoft. Þeir sem hafa orðið fyrir barðinu á svindlurunum ættu að láta þjónustuaðila yfirfara og hreinsa tölvurnar sínar umsvifalaust, jafnvel þótt þær virðist í stakasta lagi, að því er segir í tilkynningu.