Samkvæmt tilkynningu frá Kauphöllinni þá mun Swedbank hefja viðskipti á hlutabréfamarkaði Kauphallarinnar þann 14. febrúar næstkomandi.

"Við bjóðum Swedbank innilega velkominn í Kauphöll Íslands. Það er ánægjulegt að fá öflugan sænskan banka til þátttöku í kauphallarviðskiptum á Íslandi. Við vonum að kauphallaraðild Swedbank marki upphafið á sókn norrænna aðila inn á íslenskan markað" segir Þórður Friðjónsson forstjóri Kauphallarinnar í tilkynningunni.

Auðkenni Swedbank í viðskiptakerfi Kauphallarinnar verður SWB.