Lyfjafyrirtækið Alvotech hefur ráðið Tanyu Zharov sem aðstoðarforstjóra fyrirtækisins. Tanya á að leiða starfsþróunar- og mannauðsmál Alvotech, verður rekstrarstjóri hátækniseturs á Íslandi og vinna að uppbyggingu félagsins á alþjóðavísu samkvæmt tilkynningu frá Alvotech.

Mark Levick forstjóri Alvotech segir það mikinn feng að hafa fengið Tanyu til liðs við Alvotech og býður hana velkomna til starfa. „Tanya er farsæll og reynslumikill stjórnandi og þekking hennar mun nýtast fyrirtækinu vel í áframhaldandi vexti.“

Tanya er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og á að baki farsælan feril sem stjórnandi og stjórnarmaður í íslenskum fyrirtækjum. Nú síðast starfaði hún sem aðstoðarforstjóri Íslenskrar erfðagreiningar í fjögur ár, var stofnandi og framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Auðar Capital og fyrrverandi meðeigandi og skattaráðgjafi hjá PricewaterhouseCoopers.

„Alvotech er að festa sig í sessi sem eitt af leiðandi fyrirtækjum heims á sviði líftæknihliðstæðulyfja og ég er full tilhlökkunar að taka þátt í frekari þróun þess. Rauði þráðurinn í mínum starfsferli hefur meðal annars verið að vinna með frumvöðlum í uppbyggingu hátæknifyrirtækja og ég sé mjög áhugaverð vaxtartækifæri fyrir Alvotech á alþjóðavísu og til frekari fjárfestinga í íslensku atvinnulífi," er haft eftir Tanyu í tilkynningu frá Alvotech