Umtalsverður taprekstur og neikvætt eigið fé einkennir rekstur þeirra félaga sem tengjast World Class líkamsræktarstöðvunum. Um er að ræða sex félög en fimm þeirra eru í rekstri. Nánar er fjallað um félögin og rekstur þeirra í Viðskiptablaðinu.

Öll félögin, að Laugum Spa undanskildu, voru rekin með tapi á árinu 2011 en eins og gefur að skilja liggja ársreikningar félaganna fyrir síðasta ár ekki fyrir. Sameiginlegt tap allra félaganna, með hagnaði Lauga Spa meðtöldum, nam um 82,2 milljónum króna og neikvætt eigið fé þeirra nam rúmum 250 milljónum króna.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér að ofan.