Samkvæmt tölum Hagstofunnar var áætluð tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 21 milljarð króna á fyrsta ársfjórðungi 2023 eða sem nemur 2,1% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Til samanburðar nam hallinn á fyrsta ársfjórðungi 2022 2,3% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins.

Í heild er áætlað að tekjur hins opinbera hafi aukist um 11,8% frá fyrsta fjórðungi 2022. Þar að auki jukust tekjur af sköttum og tryggingargjaldi um 15,1%.

Hagstofan áætlar einnig að heildarútgjöld hafi aukist um 11,6% á fyrsta ársfjórðungi 2023 frá sama tímabili fyrra árs. Vaxtagjöld eru einnig talin hafa aukist um 46,2% frá fyrsta ársfjórðungi 2022 og skýrist það að hluta til út af versnandi lánakjörum.

Áætlað er að útgjöld vegna launa hafi aukist um 6,4%, kaup á vöru og þjónustu um 9,4% og opinber fjárfesting um 19,7%.