Á fasteignavef Vísis er til sölu 213 fermetra einbýlishús að Lyngbergi í Hafnarfirði. Að sögn eigenda gæti steypt plata hússins nýst sem þyrlupallur eða sem nýr bílskúr. Er það eina húsið til sölu á Íslandi þar sem sérstaklega er tekið fram að hægt sé að nýta sem þyrlupall.

Um er að ræða timburhús sem byggt var árið 1986. Húsið er sagt í slöku ástandi og gert er ráð fyrir að það verði endurbyggt á einni hæð.

„Nýta má steypta plötu og einhverja milliveggi. Bílskúr hefur verið rifinn og var grunnflötur hans 85,5 fm. Platan gæti nýst sem þyrlupallur að sögn eigenda eða nýr bílskúr. Góð staðsetning í grónu hverfi,“ segir í lýsingu.

Ásett verð er 30 milljónir króna.