Miklar vangaveltur hafa verið um sölu á Icelandair Group að undanförnu og mögulegum söluhagnaði FL Group af félaginu. Greiningardeild Glitnis telur því mikilvægt að stjórnendur FL Group stundi virka upplýsingagjöf til markaðarins enda er það forsenda fyrir sanngjarnri verðmyndum með hlutabréf félagsins eins og kemur fram í Morgunkorni greiningardeildar.

Greiningardeildin telur þessar vangaveltur meðal annars ástæða þess að gengi FL Group hefur hækkað um 53% á aðeins 6 vikum. Meðal annarra ástæðna sem greiningardeildin nefnir eru samanburður við Exista og kaup innherja á hlutabréfum félagsins. Erfitt er að greina raunverulegt verðmæti óskráðra félaga FL Group út frá opinberum upplýsingum.